151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að nota þessar örfáu mínútur hér til að ræða aðeins meira inn í framtíðina. Við höfum verið í krísu og höfum verið að takast ágætlega á við hana. En mig langar að ræða við hæstv. heilbrigðisráðherra um langtímaáhrif Covid-tímans, bæði á þau sem hafa verið svo ólánsöm að smitast af Covid og glíma gjarnan við skelfileg eftirköst þess en líka fyrir okkur hin sem enn höfum verið það heppin að smitast ekki.

Ég tók þátt í áhugaverðri vinnu um mat á hagsæld og lífsgæðum. Við erum búin að setja upp núna á þessu kjörtímabili ákveðna mælikvarða um hagsæld og lífsgæði. Þar fjöllum við um þrjá mismunandi þætti; þ.e. félagslega, umhverfislega og efnahagslega. Við höfum svo sannarlega verið að takast á við efnahagslega þætti Covid-ástandsins, ég sit efnahags- og viðskiptanefnd og þekki það býsna vel. Á umhverfislega þættinum þurfum við að taka enn frekar, þó að hægt sé að segja að margt jákvætt hafi komið út úr Covid, en ég hef verulegar áhyggjur af félagslegu þáttunum og þeim mælikvörðum sem við erum með þar, virðulegur forseti.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða aðgerðir eru í gangi í ráðuneyti hennar og undirstofnunum til að takast á við þau áhrif. Það var áhugavert en líka sorglegt að sjá að eftir síðasta efnahagshrun þá minnkuðu lífslíkur kvenna við góða heilsu töluvert, um rúm tvö ár, eru í dag 66,2 ár. Hjá körlum, einhverra hluta vegna, reyndar mjög gott, hækkaði þetta hlutfall. Samkvæmt þeim mælikvörðum sem landlæknisembættið er að horfa á í dag þá skynja ég sem svo að það sé líka verið að ná mælingum varðandi stress t.d. (Forseti hringir.) og það mælist enn frekar hjá konum en körlum. (Forseti hringir.) Mig þyrstir í að vita hjá hæstv. ráðherra: Hvað er ráðuneytið að gera í þeim mælikvörðum er lúta að heilsu til lengri tíma litið og félagslegum þáttum?