151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:20]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Eins og kemur fram í fyrirspurn hv. þingmanns þá vaktar embætti landlæknis með reglubundnum hætti tiltekna mælikvarða í heilsu og lýðheilsu samfélagsins. En nú stendur yfir að auki stór rannsókn á líðan þjóðar sem er unnin í samstarfi embættisins og háskólans og það er stór rannsókn sem er gríðarlega mikilvæg á þessum tímum, ekki síst til þess að við getum tekið ákvarðanir sem byggja á upplýsingum og þekkingu, það er auðvitað mjög mikilvægt. Við erum með mjög mikla áherslu á eflingu geðheilbrigðisþjónustu. Við höfum auðvitað lagt áherslu á hana almennt á kjörtímabilinu en höfum lagt sérstakt fjármagn í það, bæði á þessu ári og svo í fjárlagafrumvarpi næsta árs, til þess að efla geðheilbrigðisþjónustu, ekki bara hér á höfuðborgarsvæðinu heldur á landsvísu með því að styrkja geðheilsuteymin og styrkja geðheilbrigðisþjónustu í heilsugæslunni.

Við erum með tvo nýja stýrihópa sem hafa verið settir á laggirnar og verða undir forystu embættis landlæknis, annars vegar til að vakta geðheilbrigði og hins vegar til að vakta lýðheilsu, þetta eru sérstakir hópar sem fylgjast með þessum þáttum sem eru samkvæmt ábendingu embættis landlæknis mikilvægir.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um kynjabreytuna og hún er auðvitað mjög mikilvæg í þessu öllu, að fylgjast vel með henni og sérstaklega líðan ungs fólks, það hefur verið mjög mikið rætt í þessum faraldri. Ég hef sett af stað sérstaka vinnu við úttekt mælikvarða sem snúast um konur og heilsu. Síðast var gerð slík úttekt á árinu 2000 þannig að það er nú bara hátíðlegt að gera það núna 20 árum síðar að skoða sérstaklega samspil heilsu og stöðu kvenna.