sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra svörin og tek undir mikilvægi þess að við þurfum að horfa á kynin því að þau eru ólík og við sjáum að þetta hefur komið með mismunandi hætti við þau. Hæstv. ráðherra nefndi líka líðan ungs fólks og við höfum áhugaverðar rannsóknir og umræðu sem hefur átt sér stað á síðustu vikum um það. Það er eitthvað sem ég hef verulegar áhyggjur af, og ég held að við ættum öll að hafa, og þess vegna hygg ég að aðgerðir okkar hljóti að þurfa að miða að því hvernig við getum bætt líðan ungs fólks, auðvitað líðan fólks almennt en sérstaklega ungs fólks.
En mig langar á síðustu sekúndunum að koma inn á mikilvægi endurhæfingarþjónustu, ég get ekki annað. Við sjáum að ákveðið hlutfall þeirra sem hafa fengið Covid er að leita sér endurhæfinguþjónustu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig sér hún fyrir sér að við getum bætt enn frekar þá endurhæfingarþjónustu sem við bjóðum í landinu? Við vitum að hjá Reykjalundi, okkar helstu endurhæfingarstofnun, eru beiðnirnar umtalsvert fleiri en þeir geta sinnt á ári hverju. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að við getum bætt þessa mikilvægu heilbrigðisþjónustu þegar eftirspurnin eftir hennar eykst enn frekar eftir áhrif Covid?