151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Nú liggur loksins fyrir endurhæfingarstefna sem var löngu tímabært að yrði til. Hún hefur verið í lokaúrvinnslu í ráðuneytinu með það að markmiði að tímasetja aðgerðir og stilla upp ábyrgðaraðilum við hverja aðgerð um sig. Þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni og á þessu ári, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um endurhæfingu fyrir þá sem hafa fengið Covid, höfum við ráðstafað sérstökum 200 milljónum til viðbótar við það sem fyrir var til að beina sjónum að endurhæfingu fyrir þá sem hafa fengið Covid-19.