sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka ráðherra fyrir skýrsluna og fyrir að halda þinginu upplýstu. Við erum búin að tala saman áður um þessi mál. Ég brýni fyrir okkur að samstaða framlínufólksins er mjög mikilvæg fyrir okkur öll, að framlínan komi fram sem einn maður. Það mun vekja meira traust almennings. Þannig hefur það að mestu leyti verið og ég trúi því og treysti að svo verði áfram.
Virðulegi forseti. Mér er umhugað um heilsu fólks og að fólk geti skapað sér lífsviðurværi þrátt fyrir stöðuna sem við glímum við. Við höfum áður rætt að það er mikilvægt að tryggja fyrirsjáanleika í aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Ég spyr ráðherrann um hvernig við gerum það best. Ég spyr um íþróttastarfið sem við verðum að tryggja, að íþróttafólkið okkar og börnin geti haldið áfram að æfa, komi til þess að endurskoða þurfi takmarkanir að nýju. Félagslegt mikilvægi krefst þess.
Ég spyr ráðherrann um fjöldatakmarkanir í verslunum sem eru gagnrýndar. Nú miðast fjöldatakmarkanir eins og til að mynda í 400 manna bíósal við sömu fjöldatakmarkanir og smáverslun í Kringlunni. Ég vil fá skýringar á því hjá ráðherranum. Er ekki nauðsynlegt að fjöldatakmarkanir taki mið af stærð verslunarþjónustuhúsnæðis, skóla og opinberra bygginga eins og kostur er? Ég geri mér grein fyrir því að það flækir málið töluvert.
Ég spyr um hárgreiðslustofur og nálæga, persónulega þjónustu: Er útséð með að þessi starfsemi fái að halda áfram héðan í frá óáreitt miðað við óbreyttar aðstæður?
Í seinni fyrirspurn ætla ég að spyrja ráðherrann um bólusetningar, hvernig við högum þeim og hvernig við tökumst á við þær saman.