151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:26]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég tek undir hvert orð í máli hv. þingmanns og ég er sammála því hversu mikilvægt íþróttastarf er, bæði fyrir iðkendur en líka bara fyrir samfélagið allt, og allt það félagsstarf sem á sér stað í kringum íþróttafélög. Við höfum lagt áherslu á það nú í haust að tryggja það að skipulagt íþróttastarf barna og ungmenna geti haldið áfram. Það er auðvitað mjög mikilvægt. Það sama gildir um hársnyrtistofur og snyrtistofur og starfsemi af því tagi sem hv. þingmaður nefnir, sem er núna heimil.

Af því að hv. þingmaður spyr um fjöldatakmarkanir í verslunum þá hafa þær verið eftir tilteknum reglum. Þegar ákveðinni stærð húsnæðis er mætt, þá bætist við einn viðskiptavinur í samræmi við ákveðnar reglur með tilvísun til rýmisins. Það er í raun og veru undir þegar næsta skref verður stigið í afléttingum, sem ég vona að verði sem allra fyrst.

Ég held að við þurfum að gæta mjög vel að því, og það hefur náttúrlega komið fram í máli fleiri þingmanna, að horfa mjög breitt á heilsu og áhrif á heilsu, lýðheilsu og samfélag þegar við glímum við veiruna. Um leið þurfum við að hafa augun opin fyrir því að ef við náum ekki undirtökunum í baráttunni við hana þá erum við komin með vandamál sem varða svo stóra hagsmuni, þegar heilbrigðiskerfið er undir, að þá eru hinir þættirnir í raun og veru komnir í annað sæti.