151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:28]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir greinargóð svör. Ég held að við séum bara mjög sammála í þessum málum en það er verið að kalla eftir miklum fyrirsjáanleika og meiri sýn. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki auðvelt en ég held að við tökum samt undir það öll að það er mjög mikilvægt að það gerist varðandi íþróttir barna og unglinga og ég tala nú ekki um aldraða, hópana hans Janusar sem kalla eftir meiri æfingum.

En mig langar að spyrja ráðherrann um bólusetningar. Hvað munu þær tryggja einstaklingum? Munu þær tryggja óskert ferðafrelsi? Hvað með þá sem kjósa ekki að gangast undir bólusetningar? Verðum við ekki að höfða til ábyrgðar fólks gagnvart hvert öðru? Hefur ráðherrann skoðað það hvort heppilegra sé að ungt fólk sé framar í goggunarröðinni, þegar kemur að því að bólusetja fyrir Covid, en um hefur verið rætt í forgangshóparöðun sem fram hefur komið?