sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Þegar farið er yfir og tekin ákvörðun um forgangsröðun í bólusetningar eru nokkur sjónarmið sem koma þar til álita. Það er kannski í fyrsta lagi sá hópur sem er líklegastur til að verða fyrir heilsutjóni vegna Covid-19. Þar er náttúrlega okkar elsta og viðkvæmasta fólk. Þess vegna eru þeir hópar ofarlega. Þeir hópar sem sjá um að sinna framlínunni, hvort það er með bólusetningum, sýnatökum eða með því að sinna fólki á gjörgæslu eða annars staðar þar sem Covid-sjúklingar eru inniliggjandi, eru líka í forgangi. Þannig að það eru ákveðnar meginreglur sem við styðjumst við. En markmiðið er auðvitað að vernda fólk fyrir sjúkdómnum og ná upp ónæmi í samfélaginu og stöðva útbreiðslu faraldursins. Það er meginmarkmiðið. Með því að ná því markmiði gefur augaleið að það verður hægt að slaka á sóttvarnaaðgerðum.