sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Aðeins varðandi íþróttirnar. Eins og hv. þingmaður segir hafði ég þegar brugðist við vangaveltum af svipuðu tagi. En það er rétt að halda því til haga að veittar hafa verið undanþágur fyrir afreksíþróttafólk sem er að undirbúa eða æfa fyrir alþjóðleg mót eða keppnir. Þegar hv. þingmaður spyr um rannsóknir eða vísindalegan grunn fyrir þessum tillögum þá er því til að svara að þegar mér berast tillögur sóttvarnalæknis í samræmi við sóttvarnalög þá eru þær tillögur byggðar á upplýsingum, þekkingu á faraldursfræði, þekkingu á því hvar smithættu er helst að finna í samfélaginu o.s.frv. Það breytir því ekki að ég er sammála hv. þingmanni um mikilvægi íþrótta út frá svo mörgum sjónarmiðum. En auðvitað erum við sóttvarnalæknir samstiga í ákvörðunum um næstu skref hér eftir sem hingað til.
Hv. þingmaður spyr sérstaklega um sértækar ráðstafanir gagnvart þeim sveitarfélögum sem sætt hafa svæðisbundnum aðgerðum vegna sóttvarna. Mér er ekki kunnugt um að það hafi komið til álita. Það kann að vera en það hefur ekki verið partur af mínum daglegu verkefnum, ef svo má segja, að horfa til þess þegar verið er að beita sóttvarnaráðstöfunum tímabundið og á afmörkuðu svæði, eins og sannarlega hefur verið í Húnaþingi vestra og raunar á einhverjum fleiri stöðum. En mér er ljúft og skylt að leita upplýsinga um það og koma þeim til hv. þingmanns.