sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir skýrslugjöf hennar og mér finnst það einstaklega vel til fundið að Alþingi skuli hafa þennan hátt á, að ráðherrar komi hér og gefi okkur skýrslu og að við getum átt umræðu um þessi mál. Það gerir að verkum að ég held að við verðum betri í að taka ákvarðanir í þingmálum sem snerta þennan faraldur en það skiptir líka máli fyrir hina upplýstu umræðu. Mig langaði að segja það hér í upphafi.
En að umræðu dagsins og bóluefnum. Mér finnst það gríðarlega mikilvægt sem hefur komið fram hjá hæstv. ráðherra að bóluefnið, þegar það kemur, verði fólki að kostnaðarlausu. Þetta tel ég að skipti gríðarlega miklu máli og er til þess fallið að allir hafi aðgang að því óháð fjárhagslegri stöðu sinni.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um er að þegar þetta liggur fyrir, nú liggur fyrir listi um hvernig eigi að forgangsraða, hvort eitthvað hafi verið hugsað um það hvernig sé hægt að ná til fólks til þess að það viti að það eigi rétt á bólusetningu og að það sé jafnvel komið að þeim hópi sem það tilheyrir. Mig langar að nefna sem dæmi fólk af erlendum uppruna sem á kannski ekki því að venjast að þjónusta af þessu tagi sé því að kostnaðarlausu og fólk í viðkvæmri stöðu. Ég held að þetta hljóti að skipta máli til að aðgerðin að bólusetja fólk takist. Hvernig er hægt að ná til þessa fólks svo að það viti að því gefist kostur á bólusetningu?