151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:42]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég tek undir það sem hv. þingmaður nefnir með að þjónusta af þessu tagi á auðvitað að vera gjaldfrjáls. Við höfum nálgast þetta með þeim hætti að þetta sé eins og annað sem Íslendingar hafa gert og landsmenn, sem er réttara að segja, í tengslum við Covid-19, að það snúist ekki um boð og bönn heldur miklu frekar um það að fólk vilji leggjast á árar. Þess vegna höfum við heldur ekki farið þá leið að skylda fólk til að fara í bólusetningu heldur að það sé partur af því sem við viljum gera af fúsum og frjálsum vilja til að taka þátt í þessu samfélagslega verkefni.

Varðandi síðan það sem hv. þingmaður nefnir og ég er búinn að gleyma því sem hv. þingmaður var að spyrja um. (SÞÁ: Hvernig ætlum við að ná til fólks?) Það er gert ráð fyrir því að þeir aðilar sem annast bólusetninguna kalli eftir fólki í þeirri röð sem reglugerðin segir til um, þannig að fólk á að fá einhvers konar kvaðningu. Það er nálgunin að gera það með þeim hætti, en auðvitað líka með víðtækum auglýsingum, upplýsingum á miðlum o.s.frv. Við reynum að gera þetta eins gagnsætt og nokkurs er kostur en líka þannig að upplýsingum eða hvatningu sé beint að fólki í samræmi við þá forgangsröðun sem hefur birst í reglugerð.