151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:44]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið og mér finnst þetta hljóma sem skynsamleg leið, þ.e. að auglýsa líka. Og þessi umræða er auðvitað partur af því að samfélagið viti hvað við erum að fara í en einnig að til að mynda heilsugæslan eða félagsþjónustan nálgist ákveðna hópa. Ég held að það sé mikilvægt að það komi líka frumkvæði frá þeim sem eru að sinna þjónustunni því það er einmitt svo mikilvægt að þeir sem eru í viðkvæmri félagslegri stöðu falli ekki einhvern veginn milli skips og bryggju í þessu mikilvæga verkefni.

Þetta lítur alveg ágætlega út hjá okkur á Íslandi akkúrat núna. Það er auðvitað frábært og ég átta mig á því að þar liggur að baki gríðarlega mikil vinna hjá alls konar fólki við það að tryggja okkur bóluefni og annað. Mig langar í þessari seinni spurningu minni að spyrja út í það sem hefur verið talað um, að Ísland taki þátt í því að kaupa bóluefni fyrir aðrar þjóðir sem ekki eru eins vel stæðar og við. Þar er horft fyrst og fremst til þriðja heimsins. Er komið eitthvert nánara plan sem hæstv. ráðherra gæti sagt okkur frá varðandi næstu skref þar? Við erum eðlilega kannski svolítið fókuseruð á okkur og okkar næstu nágrannalönd. En þetta er mál sem skiptir heimsbyggðina alla máli.