sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður var að velta fyrir sér hópum sem er kannski meiri áskorun að ná til en annarra. Við höfum náttúrlega nú þegar nokkra reynslu af upplýsingamiðlun um Covid-19 og það hefur verið lögð mikil áhersla á það á vefsíðunni Covid.is að hafa upplýsingar á fleiri tungumálum og miðla þeim með sem markvissustum hætti. Ég geri ráð fyrir því að leitast verði við að gera það með sama hætti varðandi þessar upplýsingar, bæði að tryggja að þær séu aðgengilegar á fleiri tungumálum en ekki síður, þegar við erum að tala um fólk sem er búsett á hjúkrunarheimilum eða á sambýlum eða einhverjum öðrum slíkum stöðum, að tryggt sé með upplýsingagjöf bæði til íbúanna og til starfsfólksins hvernig þessari röð er háttað.
Hv. þingmaður spyr sérstaklega um samstarf okkar við alþjóðastofnanir til að tryggja aðgengi á bóluefni fyrir fólk í þeim löndum þar sem aðgengið er ekki tryggt með sama hætti, ríki sem búa við fátækt o.s.frv. Þá er því til að svara að við höfum þegar lagt af mörkum 500 milljónir í sameiginlega alþjóðlega sjóði til að tryggja það að engin ríki dragist aftur úr. Það er áætlun á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.