151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:48]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Herra forseti. Mikið hefur mætt á hæstv. heilbrigðisráðherra og hennar ráðuneyti síðan kórónuveiran skaut upp kollinum hérlendis í febrúar. Af þeim sökum hefur mesta vinnan innan ráðuneytis hennar vafalaust þurft að snúa að beinni baráttu við óværuna sjálfa. Ánægjulegar fréttir af þróun bóluefna berast nú hratt og örugglega og vonir standa til þess að hægt verði að hefja bólusetningarstarfið strax í upphafi næsta árs. Þó er ljóst að landsmenn hafa þurft að kljást við aðrar lýðheilsuógnir á undanförnum tíu mánuðum sem farið hefur minna fyrir, eins og gefur að skilja í miðjum faraldri. Hliðaráhrif sóttvarnaaðgerða hafa jafnframt fallið í skugga af faraldrinum sjálfum og ljóst er að næstu misseri munu afhjúpa umfang og alvarleika þeirra. Fyrirséð er að þörf verður á kröftugum mótspyrnuaðgerðum gegn þeim lýðheilsuvandamálum sem koma munu upp úr kafinu.

Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig hefur verið fylgst með þróun heilsufars þjóðarinnar meðfram faraldrinum og út frá afleiðingum sóttvarnaaðgerða? Hyggst ráðherra t.d. nýta þær upplýsingar sem verða til í verkefninu Líðan þjóðar á tímum Covid-19, og þá hvernig? Hver er aðgerðaáætlun ráðherra þegar kemur að öðrum lýðheilsuáhrifum faraldursins?

Eins vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig verður unnið með þau gögn sem verkefnið Líðan þjóðar á tímum Covid-19 mun skila af sér, þ.e. hvernig verða upplýsingarnar frá þessum stýrihópum teknar inn í ákvarðanatöku ráðherra og ráðuneytis hennar í framhaldinu?