151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Eins og fram kemur í spurningu hv. þingmanns þá er þetta afar viðamikil og mikilvæg rannsókn sem verið er að gera á vegum embættis landlæknis og Háskóla Íslands sem heitir Líðan þjóðar á tímum Covid-19. Þar verður að finna afar mikilvægan grunn til að beina sjónum okkar að í heilbrigðisþjónustunni. Ég tel mikilvægast af öllu þar að beina sjónum okkar að því í stóru myndinni sem skapar forsendur fyrir góða geðheilsu. Það er í raun og veru samvinnuverkefni þjóðarinnar allrar og allrar stjórnsýslunnar vegna þess að það er mikilvægt að við séum ekki svo upptekin af því að bregðast við sjúkdómum að við gleymum að fyrirbyggja þá. Þar segja fræðin okkur að stærstu breyturnar séu til að mynda sú staða ef fólk er jaðarsett af einhverjum ástæðum, býr við fátækt eða býr við efnahagslegan skort af einhverju tagi, skort á aðgengi á þjónustu eða einhverju slíku, þá eru miklar líkur á því að viðkomandi glími við vanheilsu og sérstaklega undir kringumstæðum eins og þessum. Þess vegna þurfum við að passa upp á að vera með augun á boltanum, ef svo má segja. Við þurfum að fylgjast mjög vel með í gegnum stýrihóp um lýðheilsu og annan stýrihóp um geðheilsu, hvernig þjóðinni reiðir af mánuð fyrir mánuð og ekki síst þegar þessi faraldur verður loksins að baki.