151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:52]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra greinargóð svör við spurningum mínum og tek undir mikilvægi þess að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir og að fyrirbyggjandi aðgerðir séu svo mikilvægur lykill að góðu heilsufari þjóðar. En mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um það að meðfram umræðunni um nýtt frumvarp um breytingu á sóttvarnalögum hefur umræða um heimild til að skylda landsmenn í bólusetningu verið áberandi. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hún líti svo á að mikilvægt sé fyrir hana að hafa þessa heimild í verkfærakistunni. Telur hún rétt að möguleikinn á því að neyða fólk í slíka læknisaðgerð samrýmist mannhelgi? Og telur ráðherra sig raunar hafa þá heimild?