sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Frumvarp mitt um breytingu á sóttvarnalögum er komið til umfjöllunar í velferðarnefnd og ég geri ráð fyrir því að hv. velferðarnefnd skoði þau sjónarmið sem hv. þingmaður nefnir hér. Það liggur kannski í hlutarins eðli að það sem ég legg til við þingið er það sem ég legg til að verði samþykkt og verði niðurstaðan. En hins vegar er það þingið sem er löggjafinn og ræður niðurstöðunni, þ.e. nefndin leggur til við Alþingi hvernig lögin muni líta út að aflokinni afgreiðslu þingsins. Þannig að ég held að það sé mikilvægt að velferðarnefnd fái næði til að fjalla um málið og 1. umr. málsins er í raun lokið. Allar þær heimildir sem eru í frumvarpinu og eru í núverandi sóttvarnalögum eru heimildir sem ráðuneytið og sú sem hér stendur telur mikilvægar. Ég hef ákveðið að fara að ráði þeirrar nefndar sem skrifaði frumvarpið með aðkomu þeirra sem best þekkja til varðandi framkvæmd sóttvarnalaga.
Hv. þingmaður brýnir mig til dáða varðandi lýðheilsusjónarmið og forvarnir o.s.frv. Þá vil ég líka segja frá því, af því að hv. þingmaður hefur skilning á því að baráttan gegn Covid sé svolítið í forgrunni núna og hefur verið á þessu ári, að það er líka þannig að við höfum bætt í fjármagni og áherslum varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir, varðandi heilsueflandi móttöku í heilsugæslunni, varðandi áherslur til að mynda á mikilvægi svefns. Ég og landlæknir höfum verið að undirbúa slíka herferð og það var komið í gang í janúar þegar við lentum í því að hafa önnur mál á dagskrá. En það er auðvitað alveg gríðarlega mikilvægt lýðheilsumál að passa upp á svefninn.