151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[12:58]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég er ekki hissa á að hv. þingmaður spyrji um þetta. Það eru náttúrlega margar fréttir á dag af þessum málum og ekki síst þess vegna er einmitt mikilvægt að við ræðum það hér. Eins og staðan er núna lítur út fyrir að bóluefni verði keypt af þremur fyrirtækjum til að byrja með, þ.e. AstraZeneca, Pfizer og Moderna. Það er unnið að samningum við fleiri fyrirtæki. AstraZeneca er eina fyrirtækið sem við höfum nú þegar undirritað samning við og samningur við Pfizer verður undirritaður 9. desember. Þetta er staðan. Það er ekki komin dagsetning á undirritun við Moderna en vonast er til að það verði fyrir jól. Við getum ekki fullyrt núna hvenær við fáum bóluefni frá hverju fyrirtæki fyrir sig eða hversu marga skammta á hverjum tíma en við getum hins vegar sagt að það er líklegt að við fáum skammta fyrir 85.000 manns frá Pfizer, fyrir 115.000 manns frá AstraZeneca og fyrir 40.000 manns frá Moderna. Þetta eru tölurnar sem við erum með í höndunum núna. Eftir að markaðsleyfi fæst hérlendis líður einhver tími þar til bóluefnin koma til landsins, það fer eftir því hversu mikið hvert fyrirtæki á af bóluefnum á hverjum tíma og hvað þeir afhenda hverju ríki fyrir sig. Við höfum ekki skýrar upplýsingar um það hversu hratt þetta gerist.

Við vitum hins vegar, og það getum við sagt miðað við þær upplýsingar sem núna liggja fyrir, að við getum hafið bólusetningar á fyrstu vikum nýs árs og að markmiðum bólusetningar verður náð u.þ.b. á fyrsta ársfjórðungi ársins.