151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:00]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Það er mikill léttir að heyra þetta. Þetta er mjög ánægjulegt og gefur okkur von um að við séum að hefja nýtt ár. Þetta ár verður lengi í minnum haft eins og við þekkjum öll og ekki ætla ég að hafa fleiri orð um það hér. Úrlausnarefnin eru mörg að loknu þessu öllu saman. Það er gott að heyra að við séum að gera rannsóknir. Við erum að fylgjast með líðan barna, ungmenna og fólks á öllum aldri. Það er gríðarlega mikilvægt.

Núna langar mig til að beina sjónum okkar að ákveðnum hópi, það eru ungmenni á framhaldsskóla- og háskólastigi sem hafa sum hver búið við nokkra óvissu varðandi það hvernig næsta önn verður. Ákveðinn hópur hefur ekki komið í skólann sinn þessa önn en aðrir hafa fengið það að hluta til. Skólarnir hafa verið að leysa þetta eftir bestu getu og hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þeim. En mig langar til að spyrja hvort þessi hópur gæti fengið einhvern fyrirsjáanleika varðandi þetta. Það eru ekki allir sem búa nálægt skólunum sínum. Margir eru í öðrum sveitarfélögum og annað slíkt. Fyrirsjáanleiki gæti hjálpað þeim hópi svo fremi við getum bara svarað þessu yfirleitt. Ég bind vonir við að við getum það. Ég vona það svo sannarlega því að þetta skiptir miklu máli.

Svo langar mig að víkja aftur að því, eins og ég hef gert áður í þessum ræðustól og gerði í ræðu um daginn, að við ætlum að læra mikið af þessu. Við ætlum að taka margt út úr þessu. Ég skora á okkur öll að taka út hvað við lærðum, hvað er jákvætt og hvað við getum tekið áfram með okkur út úr þessu. Hæstv. ráðherra talaði um svefnrannsóknir. Nú hefur verið sýnt að ungmennin okkar sofa betur. Getum við unnið út frá því? Það er mjög mikilvægur þáttur sem við þurfum að hafa í huga og hvetja þau til að sinna betur áfram. Ég bind vonir við að við náum að taka það jákvæða út úr þessu og byggja okkur áfram upp á þeim grunni.