sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Varðandi ungmennin okkar þá tek ég undir áhyggjur hv. þingmanns. Í raun og veru getum við sagt að þetta séu þyngstu raddir sem heyrast núna í samfélaginu, þ.e. frá fjölskyldum ungmenna í framhalds- og háskóla. Fólk hefur áhyggjur af því hvernig þessari önn lýkur, hvernig sú næsta byrjar o.s.frv. Við höfum endurtekið talað um mikilvægi þess að einhver fyrirsjáanleiki sé í samfélaginu og ef það er mikilvægt einhvers staðar er það hjá fólki þar sem eitt ár skiptir miklu meira máli en hjá fólki sem er komið á, og ég tala nú ekki um yfir, miðjan aldur. Við hæstv. menntamálaráðherra höfum verið algerlega sammála um mikilvægi þess að tryggja staðnám á framhaldsskólastigi eins og nokkurs er kostur. Það er í algjörum forgrunni þegar við fjöllum um næstu skref hvað varðar skólana.
Hv. þingmaður veltir upp mikilvægi þess að draga lærdóm af faraldrinum, eins og er vinsælt að tala um, en ekki síður af aðgerðunum og því hvernig við sem samfélag höfum tekist á við faraldurinn. Ég held að það sé a.m.k. alveg ljóst að við getum dregið þann lærdóm að það er okkur til gæfu að hlusta á ráð okkar besta fólks. Það hefur líka verið okkar gæfa á Íslandi enn sem komið er að sóttvarnaráðstafanir hafa ekki verið flokkspólitísk bitbein eins og sums staðar hefur gerst í heiminum þar sem fólk hefur skipað sér í stjórnmálaflokka eftir því hvort það vill grímur eða ekki. Það hefur sem betur fer ekki gerst. Ég held að það sé mikilvægt en ekki síður þættir sem hv. þingmaður nefnir og lúta að lýðheilsu.