151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnarráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:04]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þessa upplýsingagjöf, fyrirkomulag og framkvæmd sem mér finnst vera algjörlega til fyrirmyndar. Við erum í þessu samhengi að ræða jákvæðar fréttir, þær koma nú ekki á degi hverjum í þessu samhengi, um bólusetningu og möguleika á henni. Ég hefði áhuga á að heyra nánari útlistun hæstv. ráðherra á kynningarmálum og upplýsingagjöf til almennings í því samhengi hvernig henni verður háttað. Mér finnst ég greina það í umræðunni að það eru auðvitað mikil gleði, mikil eftirvænting en líka óvissa og reyndar alls konar tilfinningar sem greinilega bærast með fólki, einhverjar raddir sem spegla kvíða t.d. um hvað felst í þessu o.s.frv.

Hin spurningin varðar hvort almenningur fái að heyra eitthvað meira um rök stjórnvalda um forgangshópana. Það hefur auðvitað komið fram í máli hæstv. ráðherra, eftir því sem ég skil, að það verði fókuserað á eldra fólk t.d. og þá sem eru veikir af einhverjum ástæðum. En á hverju er byggt í því sambandi? Það blasir auðvitað við með gamla fólkið, en hvar í röðinni standa t.d. ungmennin okkar, og þá í samhengi við þessar þungu félagslegu afleiðingar, t.d. menntaskólanemar? Ég á nú einn slíkan sjálf, sem er eiginlega að missa af tveimur af þremur árum, því tvö af þremur menntaskólaárum eru mjög markeruð af þessu tímabili.

Og kannski í lokin varðandi forgangshópa og hugmyndafræðina að baki: Eru ríki sem við berum okkur saman við, Norðurlönd, Evrópuríki o.s.frv., að nálgast þetta (Forseti hringir.) verkefni eins um forgangshópa og röksemdafærslur þar að baki?