sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Í fyrsta lagi varðandi upplýsingagjöfina þá held ég að ég verði að nefna það að sú umræða sem stendur núna yfir er í raun og veru partur af upplýsingagjöfinni því eins og fram hefur komið hér fyrr í umræðunni þá hrannast upp fréttir á hverjum degi af bóluefnum og hvenær þau komi og hvernig þessu verði háttað o.s.frv. Ég held að það hvíli mikil skylda á stjórnvöldum að tryggja að upplýsingar séu sem skýrastar.
Varðandi upplýsingagjöf þegar komið er að því að bólusetja þá gerum við ráð fyrir því að upplýsingagjöfin verði í gegnum heimasíðu Covid.is, líka í gegnum Heilsuveru, í gegnum auglýsingaherferðir og með því nálgast hvern og einn eftir atvikum. Og af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um reglugerðina og þá nálgun að forgangsraða í bólusetninguna þá er markmið okkar með því að tryggja eins mikinn fyrirsjáanleika og hægt er og að byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Það er eiginlega það sem er okkar skylda. Mikilvægast er eiginlega að við séum með þessa forgangsröðun þegar fyrsti eða fyrstu skammtarnir koma. Það liggur eiginlega í augum uppi að þegar bóluefnin eru farin að koma í ríkum mæli er málið komið á dálítinn skrið. Þetta snýst um það hverjir eru fyrstir og þá horfum við til þeirra hópa sem eiga á hættu að smitast starfa sinna vegna en svo líka fólk sem er útsettara fyrir alvarlegum einkennum, sem er þá eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma.
Þetta er í samræmi við leiðbeiningar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Það er dálítill munur á því hvernig þetta er gert milli landa en ekki svo mikill að (Forseti hringir.) við getum sagt að það sé gjörólíkt. En svo að það liggi fyrir þá telja fyrstu fimm hóparnir 11.000 manns á Íslandi (Forseti hringir.) en sjötti hópurinn kannski yfir 70.000.