151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:09]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það er augljóst í þessu máli að árangur í heilbrigðismálum helst í hendur við árangur í efnahagsmálum, ekki bara hvað varðar opnun atvinnulífs og möguleika fyrirtækja og fólks til að fara að skapa sér tekjur, heldur einnig hvað varðar væntingar. Við sáum t.d. bara hvaða áhrif það hafði á hlutabréfamarkaðinn að fá þessi tíðindi. Eftir þessu er beðið. Í samhengi við væntingar eru aðeins misvísandi skilaboð í fréttum, annars vegar frá forstjóra Lyfjastofnunar í fréttum í gær sem talaði um líklega bólusetningu strax í byrjun janúar og síðan í ummælum sóttvarnalæknis á upplýsingafundi í dag þar sem hann talaði um raunhæfa bjartsýni og ótímabært að við værum að hefjast handa í þessum efnum í janúar.

Getur heilbrigðisráðherra (Forseti hringir.) upplýst okkur eitthvað frekar um þetta og þá í samhengi við væntingarnar og í samhengi við þann punkt að heilbrigði og árangur þar helst mjög í hendur við árangur í efnahagslífinu?