sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Allt hangir þetta saman, heilsa okkar, bæði líkamleg heilsa og geðheilsa og svo liggur mér við að segja heilsa samfélagsins sem slíks. Þetta hangir allt saman og ég tek undir það sem hv. þingmaður bendir á í þeim efnum. En ég vil segja það líka, af því að það er dálítið óvenjuleg staða að mörgu leyti, að Alþingi Íslendinga hefur svo nýlega glímt við og tekist á við það að ræða gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu og afgreitt frá sér þingsályktunartillögu um það, gerði það á síðasta þingi. Þá erum við í raun og veru komin með dálítinn leiðarvísi þar sem við erum að tala um þætti eins og mannhelgi og líf og heilsu o.s.frv., þar sem eru ákveðin leiðarljós sem við getum notað.
En af því að hv. þingmaður nefnir það að sóttvarnalæknir sé kannski varfærnari í sínum orðum heldur en aðrir, þá held ég (Forseti hringir.) að við séum öll að tala um það, og það er ábyrgt að segja það, að við munum sjá bólusetningar á (Forseti hringir.) fyrsta fjórðungi næsta árs og að þær muni hefjast snemma á því tímabili.