sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Nú eru níu mánuðir síðan allt lamaðist út af þessari blessuðu veiru. Á þeim tíma hefur margt skeð. En ég veit ekki hvort það er Covid-tengt og ég vil spyrja hæstv. ráðherra um skýringar á því hvers vegna í ósköpunum klippt hefur verið á að einstaklingar sem þurfa á sjúkraþjálfun að halda, sem áður gátu farið og fengið sex tíma þar án þess að vera með beiðni frá lækni, geta það ekki lengur því að nú er búið að klippa á það. Nú verður alla vega fá beiðni. Það þýðir bara að við erum að spara krónuna og henda 100 kr., vegna þess að þetta er miklu meiri vinna fyrir læknana. Þetta skiptir ofboðslega miklu máli fyrir þá einstaklinga sem hrasa t.d. á svelli eða eitthvað, sem þurfa einhverja smáaðstoð vegna þess að þeir meiðast í baki eða eitthvað. Það er mér gjörsamlega óskiljanlegt að þetta skuli vera gert svona. Á sama tíma er fjöldi fólks að glíma við afleiðingar veirunnar og þarf líka á sjúkraþjálfun að halda. Þannig að ég myndi segja að það væri miklu eðlilegra að sjá til þess að aðgangur að sjúkraþjálfun væri með besta móti og væri óbreyttur, en ekki vera að breyta þessu bara einhliða — vegna hvers? Það er spurningin. Ég vona að heilbrigðisráðherra geti svarað því. Á sama tíma vil ég benda á að ungt fólk sefur jú betur, en ég hef áhyggjur af eldra fólki. Ég hef áhyggjur af fólki sem áður gat farið í sund og hreyft sig. Það er ekki hægt að segja bara við það: Farið út að labba. Stór hópur fólks getur það ekki. Ég spyr: Verður ekki eitthvað gert? Ég segi fyrir mitt leyti að það er bæði andlega og líkamlega nauðsynlegt að opna sundlaugarnar sem fyrst.