151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:14]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Fyrst varðandi óundirbúna fyrirspurn um sjúkraþjálfun þá held ég að með þeirri breytingu sem hv. þingmaður vísar til, þar sem þarf að fá tilvísun frá heilsugæslu, ætti það ekki að vera þröskuldur til að fá þá þjónustu. Og svo er líka sjúkraþjálfara sums staðar að finna í heilsugæslunni sjálfri og hefur það sem betur fer farið vaxandi.

Hv. þingmaður spyr sérstaklega um sundlaugarnar. Eins og þingmaðurinn hefur tekið eftir þá var að finna áform í tillögum sóttvarnalæknis frá 25. nóvember sl. um að leggja það til við heilbrigðisráðherra að heimila opnun sundstaða. Þá var gert ráð fyrir því að þar gætu verið 50% þeirra sem hver sundstaður hefur leyfi fyrir. Það var ekki síst vegna nákvæmlega þeirra ástæðna sem hv. þingmaður nefnir, þ.e. mikilvægi hreyfingar fyrir fólk sem býr við einhvers konar vanda, stoðkerfisvanda eða vanda að því er varðar hreyfifærni, hvort sem það eru aldraðir eða aðrir. Þannig að ég er algerlega sammála þingmanninum um mikilvægi þess að sundlaugar séu ofarlega á blaði þegar kemur að aðgerðum til þess að aflétta takmörkunum.