151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

sóttvarnaráðstafanir með sérstakri áherslu á bólusetningar gegn Covid-19 - forgangsröðun og skipulag, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[13:17]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir vekja máls á mikilvægi hreyfingar. Það er auðvitað alveg hárrétt sem hv. þingmaður segir að það er mikilvægt að fólk hafi tækifæri til þess í sem ríkustum mæli að hreyfa sig, og ekki síst þeir sem búa við einhvers konar hindranir á hreyfifærni.

Mig langar, af því að ég geri ráð fyrir, forseti, að þetta sé mitt síðasta tækifæri undir þessari umræðu, að þakka hv. þingmönnum og forseta fyrir að vera með mér í því að gefa færi á umræðu sem þessari. Núna gátum við rætt um bóluefni og það hvernig þau mál öllsömul líta út fyrir Ísland. Staða málsins er sú að við höfum tryggt okkur kaup á bóluefnum, við höfum undirbúið kynningu, við höfum undirbúið flutning, við höfum undirbúið skipulag bólusetningarinnar, þannig að við erum reiðubúin fyrir það að bólusetja fyrir Covid-19.