151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

tollasamningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

348. mál
[14:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það sem kreppan mikla á síðustu öld kenndi okkur, og þá sérstaklega setning Smoot-Hawley laganna í Bandaríkjunum, er að þegar þjóðir reyna að bregðast við efnahagslegum áföllum og vernda innlendan markað með hækkun tolla leiðir það til stigvaxandi aðgerða viðskiptaþjóða sem draga úr milliríkjaviðskiptum og það getur síðan lengt og dýpkað efnahagskreppuna svo um munar. Það eigum við að hafa í huga. Við eigum auðvitað að styðja vel og kröftuglega við landbúnað en við eigum ekki að gera það með tollmúrum. Við eigum frekar að beita beinum stuðningi, t.d. í gegnum jarðræktarstyrki eins og við í Viðreisn höfum lagt til. Ég styð þessa skýrslubeiðni af því að ég tel það vera lýðræðislegan rétt þingmanna að leggja slíka beiðni fram. Ég bið fólk að hafa í huga að það skiptir máli að styðja við frjáls og opin viðskipti en í þessu máli eins og mörgum öðrum frelsismálum virðist ekki alltaf hægt að finna breiðan stuðning innan Sjálfstæðisflokksins.