breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Forseti. Gallinn við bandorma, eins og svona safnfrumvörp eru kölluð í daglegu tali, er að þar er stundum blandað saman mjög slæmum og mjög góðum málum, sem gerir okkur erfitt fyrir, a.m.k. við atkvæðagreiðslu um málið í heild. Efnahags- og viðskiptanefnd, undir forystu hv. þm. Óla Björns Kárasonar, hefur einu sinni sem oftar gert ýmsar breytingar og lagfæringar á þeim tillögum sem komu frá ríkisstjórninni, ekki hvað síst varðandi viðbrögð við Covid-faraldrinum. Þetta er engu að síður fyrst og fremst mál sem snýst um auknar álögur, skatta- og gjaldahækkanir, sem leggjast á allan almenning og í sumum tilvikum þyngra á þá tekjulægri en þá tekjuhærri. Því er ekki hægt að styðja þetta mál í heild, og sumar greinar þess eru mjög varhugaverðar.