151. löggjafarþing — 31. fundur, 3. des. 2020.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
5. mál
Herra forseti. Ekki þarf að orðlengja það að veitingageirinn í landinu hefur orðið fyrir gríðarlega miklum búsifjum og er mikil áhersla, þó varla nóg, lögð á að koma honum á fætur aftur. Viðreisn leggur til að fallið verði frá því að hækka áfengisgjaldið, sem er vissulega íþyngjandi og óþarfi að hækka það á þessum tímum. Nóg er nú samt sem þessi atvinnugrein þarf að glíma við. Við leggjum til að áfengisgjald verði ekki hækkað að þessu sinni.