151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[14:15]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Frítekjumark launatekna öryrkja er nú rétt tæplega 110.000 kr. á mánuði og hefur ekki hækkað frá árinu 2010. Ef sú upphæð hefði fylgt launavísitölu væri hún um 200.000 kr. á mánuði. Við leggjum til afar hógværa breytingu í tveimur skrefum þannig að árið 2021 fari frítekjumarkið upp í 150.000 kr. en nái 200.000 kr. á árinu 2022. Forgangsröðun þessarar ríkisstjórnar er auðvitað afskaplega sérkennileg og við sjáum það í þessu frumvarpi þar sem skattleysismörk vegna erfðafjárskatts, sem líka voru sett árið 2010, eru hækkuð um 233%, en frítekjumark vegna launatekna öryrkja er látið standa í stað. Það er forgangsröðun sem birtist í þessu frumvarpi (Forseti hringir.) og slík forgangsröðun mun birtast á næstu dögum í öðrum frumvörpum sem koma fram (Forseti hringir.) frá þessari ríkisstjórn.