151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[14:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hér greiðum við atkvæði um hækkun á sóknargjöldum, sem er athyglisverð hækkun í meðhöndlun meiri hluta nefndarinnar. Þetta er náttúrlega úr sér gengið fyrirkomulag. Að sjálfsögðu eiga trú- og lífsskoðunarfélög að innheimta félagsgjöld sín sjálf þannig að við ættum að afnema lög um sóknargjöld í stað þess að ríkið innheimti rúmlega 12.000 kr. í félagsgjöld af einstaklingi í lífsskoðunar- eða trúfélagi. Ég legg til að við segjum einfaldlega nei við þessu og vil helst að við hendum þessum lögum út.