breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Virðulegur forseti. Ég er hluti af meiri hluta hv. nefndar sem flytur þessa tillögu og styð hana að sjálfsögðu. Það er alveg hægt að tala um það til lengri tíma litið hvort rétt sé að við innheimtum félagsgjöld fyrir kirkjuna og önnur trú- og lífsskoðunarfélög eða hvort gera ætti það á einhvern annan hátt. En hér erum við að tala um mikilvæga leiðréttingu á sóknargjöldunum og ég held að það sé mikilvægt að við þorum að standa upp og tala fyrir kirkjuna og önnur lífsskoðunarfélög. Það skiptir reglulega miklu máli í því árferði sem við búum við núna að við njótum þjónustu þessara mikilvægu samtaka.