151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[14:21]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Atvinnuleysi er mikið böl. Rekstrarerfiðleikar eru það líka ef þeir keyra úr hófi fram. Tillaga Viðreisnar gengur út á það að þau fyrirtæki sem ráða fólk af atvinnuleysisskrá, eða þegar það er atvinnulaust, fái tímabundið helmingsafslátt af tryggingagjaldinu á næsta ári. Með því vinnst tvennt: Fyrirtækjum verður auðveldað að ráða fólk í vinnu og fólki verða gefnir betri möguleikar á því að fá vinnu. Þetta er brýnt mál og ég vona að það verði samþykkt.