breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.
Herra forseti. Hér leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að trappa niðurgreiðslur á tengiltvinnbílum ekki niður nú um áramótin heldur verði afslátturinn á næsta ári áfram 960.000 kr. í stað 600.000 kr. á hvern bíl. Það er gert eftir ábendingu Bílgreinasambandsins. Sama gerðist hér fyrir ári þegar fjármálaráðherra lagði til að niðurgreiðslum yrði hreinlega hætt enda hefðu þær skilað nægum árangri. Nefndin lagði á móti til að framlengja þær um tvö ár, aftur í takt við ábendingar Bílgreinasambandsins. Kostnaður ríkissjóðs við það mun hlaupa á hundruðum milljóna og meiri hlutinn hefur ekki sýnt fram á loftslagsávinning til að réttlæta þessa breytingu enda gætu fjármunirnir hæglega skilað miklu meiri árangri í baráttunni gegn loftslagsbreytingum eftir öðrum leiðum. Ísland er á þeim stað í orkuskiptum að það getur ekki talist forgangsverkefni að auka niðurgreiðslur á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Því segi ég nei.