151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2021.

5. mál
[14:26]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Breytingartillagan gengur út á það að fresta um eitt ár gildistöku þess að frítekjumark erfðafjárskatts verði hækkað. Ástæðan fyrir því að það er lagt til er fyrst og fremst sú að það er ekki nauðsynleg aðgerð í því að laga efnahagsástandið, þar sem erfiðleikar eru. Breytingin er í sjálfu sér ágæt en ég held að hún sé ekki tímabær. Jafnframt þarf að taka lög um erfðafjárskatt til heildarendurskoðunar. Það er ástæðan fyrir því að ég er þeirrar skoðunar að fresta beri gildistöku þessa ákvæðis um eitt ár.