151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

mannvirki.

17. mál
[14:28]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil í samhengi við það frumvarp sem við greiðum hér atkvæði um ítreka þau sjónarmið sem Öryrkjabandalag Íslands hefur komið á framfæri í umsagnarferlinu. Ekki var tekið tillit til sjónarmiða þeirra þegar frumvarpið var í samráðsgátt. Bandalagið gagnrýnir framkvæmdina, þ.e. leyfisveitingar og eftirlit. Þær breytingar sem fram koma í frumvarpinu eru ekki lagðar fram í nafni notenda heldur iðnaðarins. Það er ekki ásættanlegt að eftirlit sé haft af aðilum sem hafa ekki þekkingu á ákvæðum algildrar hönnunar og veita jafnvel afslætti af henni, að það séu aðilar sem byggja en losa sig svo við eignina. Oft er vikið frá kröfum um algilda hönnun, og það líðst. Það þurfa að vera óháðir vottaðir skoðunaraðilar sem halda utan um eftirlit með byggingu mannvirkja.

Ég verð á gulu í þessu.