um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Dagskrá fundarins liggur fyrir. Ég veit að þingflokksformenn eru að funda með hæstv. forseta. Við höfum staðið frammi fyrir því, við þingmenn, og höfum undirgengist það, að málfrelsi okkar hefur að vissu leyti verið skert í gegnum Covid-faraldurinn. Við erum með takmarkaðri þingfundatíma en áður og það er auðvitað með það að markmiði að við getum einbeitt okkur í þingstörfum að þeim málum sem fyrst og fremst snerta atvinnulíf, efnahagslíf þjóðar og líðan þjóðar. Ég vil beina því til forseta, og um leið til þingflokksformanna, að forgangsraða málum hér í þinginu á dýrmætum tíma fram að jólum fyrst og fremst í þágu efnahagslífs, atvinnulífs og þess að taka tillit til líðanar þjóðar. Mér finnst að við eigum að forgangsraða þannig. Ég held að það eigi að leggja gæluverkefni ríkisstjórnarinnar aðeins til hliðar í stað þess að koma með þau í spreng korteri fyrir jól á þessum erfiðu tímum. Ég ítreka að við eigum að forgangsraða málum sem snerta efnahag, atvinnulíf og líðan þjóðar.