151. löggjafarþing — 31. fundur, 3. des. 2020.
um fundarstjórn.
Forseti vill segja það eitt að að undanförnu hafa samtöl og samráð um undirbúning dagskrár funda gengið með ágætum og allt farið fram í mjög góðum anda. Forseti er þakklátur þingflokksformönnum fyrir gott samstarf um það. Dagskrá dagsins er til að mynda sett þannig upp í dag að eingöngu er fyrir höndum að ræða, á eftir því sem þegar hefur borist frá nefndum, svokölluð áramóta- eða Covid-mál. Þau eru höfð í algjörum forgangi.