staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Virðulegi forseti. Það eru nokkur atriði sem væri gaman að fara yfir í þessum ríkisreikningi. Byrjum á bókhaldslegri meðferð á fasteignum, eins og við höfum verið að fjalla um hér, uppgjöri o.s.frv. Í fjárlaganefnd höfum við í þó nokkuð langan tíma verið að glíma við ákveðinn jarðasamning við þjóðkirkjuna, kirkjujarðasamkomulagið svokallaða, sem gerð er grein fyrir í fjárlögum og er næstum því upp á 4 milljarða. Það er viss skuldbinding tengd þeim samningi við þær jarðir sem voru afhentar þegar samkomulagið var gert. Fyrst við erum enn þá að greiða af samningnum — við erum í rauninni að borga fyrir jarðirnar miðað við þann skilning — myndi maður halda að maður gæti farið í fasteignirnar sem falla þar undir og séð skuldbindinguna gagnvart samningnum sem um ræðir, hversu mikið er eftir af skuldbindingunni og þess háttar. En við öllum spurningum okkar til fjármálaráðuneytisins er öxlum bara yppt. Enginn veit hvaða jarðir það voru sem ríkið fékk afhentar eða hvaða verðmætamat fylgir þar á bak við. Þegar ríkið veit ekki hvaða fasteignir það fékk en er samt að borga milljarða á ári fyrir skuldbindingu gagnvart þeim samningi veltir maður fyrir sér hvort verið sé að fara bókhaldslega vel með fasteignir ríkisins og hvernig það standist eiginlega lög um opinber fjármál. Hvernig á að gera það upp? Ef hv. formaður fjárlaganefndar gæti fjallað aðeins um þetta vandamál okkar í andsvari þá væri það vel þegið.