staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um meðferð fasteigna, jarða og eigna. Ég myndi ekki kalla þetta vandamál. Þetta eru vissulega verkefni. Það er vissulega mælt fyrir um það hvernig skuli meta eignir ríkisins í bókhaldi og svo í framsetningu reikningsskila. Ég vil vísa í þá ábendingu sem við erum með í nefndaráliti þar sem við höfum kallað eftir því að fá nánari upplýsingar um umsýslu með fasteignir, opinberar upplýsingar um þær og jarðir í eigu ríkisins. Þá er einmitt hægt að taka undir með hv. þingmanni og vísa í kirkjujarðasamkomulagið sem hann vísar í. Það er sannarlega samkomulag milli ríkisins og kirkjunnar sem er í gildi. Við höfum kallað eftir upplýsingum um þær eignir og jarðir og hvernig farið er með þær. Það er bagalegt að við höfum ekki fengið það upplýst. Ég tek undir með hv. þingmanni í því. Og við höldum áfram að kalla eftir þeim upplýsingum.