staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Forseti. Í einni grein þessa samnings eru ákvæði um 15 ára gildistíma sem er ekki löglegt samkvæmt lögum um opinber fjármál. Í samræmi við t.d. stefnumótun stjórnvalda, 20. gr. laga um opinber fjármál, sem við höfum átt orðastað um áður hvernig er ekki verið að uppfylla, þá átta ég mig ekki á því hvernig ríkisendurskoðandi getur sagt við okkur í fjárlaganefnd að ríkisreikningurinn sé í samræmi við lög um opinber fjármál. Ég skil ekki hvernig það gengur upp. Við höfum farið yfir það oft hér í umræðum um fjárlög og fjármálaáætlun og hv. formaður fjárlaganefndar hefur verið sammála mér um að ákveðnum atriðum varðandi t.d. stefnumótun stjórnvalda sé ábótavant og (Forseti hringir.) kostnaðar- og ábatagreiningu, valkostagreiningu og þess háttar sé ekki framfylgt. Þetta vantar. Hvernig (Forseti hringir.) er þar af leiðandi hægt að fullyrða að þetta sé í samræmi við lög um opinber fjármál?