151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa spurningu. Hv. þingmaður vísar til 20. gr. og fimm ára reglunnar um þjónustusamninga. Við höfum spurt þessarar spurningar, hvernig standi á því að hér sé gert samkomulag til 15 ára, og vísað í þessa lagagrein og fimm árin. Þá höfum við fengið þau svör að hér sé ekki um að ræða þjónustusamning til fimm ára heldur sé verið að ganga frá gömlu samkomulagi sem hafi þó þennan gildistíma. Ég hef í raun og veru ekki frekari svör en þau sem við höfum fengið þegar við höfum spurt þessarar spurningar.