staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og vildi koma aðeins inn á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2019 sem einkenndust að mínum dómi af mikilli útgjaldaaukningu og skorti á ráðdeild þrátt fyrir skýr merki um samdrátt í hagkerfinu. Aukningin í ríkisútgjöldum fyrir árið 2019 var því miður innstæðulaus. Því neyddist ríkisstjórnin til að leggja fram aukafjárlög það ár. Samkvæmt lögum um opinber fjármál hefðu þau á þeim tíma átt að heyra sögunni til. Það kemur því varla á óvart að uppgjörið í ríkisreikningi sýni 67,4 milljarða kr. verri afkomu miðað við fjárlög 2019. Samkvæmt reikningsskilum aðlöguðum að fjárlagagrunni, eins og sagt er, var afkoma neikvæð um 38,9 milljarða. Samkvæmt fjárlögum 2019 átti ríkissjóður að skila jákvæðri afkomu upp á 28,6 milljarða. Þessi verri afkoma samkvæmt uppgjöri skýrist að mestu af því að tekjur voru ofmetnar um 63,5 milljarða kr. í fjárlögum 2019.
Ég verð að segja, frú forseti, að það er alveg ljóst að áætlunargerð ríkisfjármála af hálfu ríkisstjórnarinnar hlýtur að vera afleit þegar um svo gríðarlegt ofmat er að ræða. Ég verð að spyrja hv. þingmann og formann fjárlaganefndar, Willum Þór Þórsson, að því (Forseti hringir.) hvort hann sé ekki sammála mér í því að þessi (Forseti hringir.) vinnubrögð og þetta ofmat séu í raun og veru afleit vinnubrögð.