staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég vil þvert á móti bara hafna því alfarið að hér sé um afleit vinnubrögð að ræða. Fjárlög næsta árs byggja á efnahagspám. Það er sú spá sem við höfum og Hagstofan gefur út. Við í fjárlaganefnd reynum vissulega að átta okkur á því hvað aðrir hagspáraðilar segja. Það er hárrétt sem hv. þingmaður segir að sterkar vísbendingar voru um að farið væri að hægja verulega á í efnahagslífinu og margir gagnrýndu að efnahagsspáin væri of bjartsýn. Það kann að vera góð venja að stíga varlega til jarðar þegar kemur að því að meta þetta út frá hagspám. Það sem ég get þó tekið undir með hv. þingmanni er að ef eitthvað var þá vorum við að setja okkur í einhvers konar spennitreyju miðað það svigrúm sem stefnan gaf enda rákum við okkur á það. Þegar ég segi þvert á móti þegar hv. þingmaður vísar í afleit vinnubrögð þá er verið að beita ríkisfjármálunum til að mæta niðursveiflunni, eins og akkúrat núna þegar við erum í mjög djúpri kreppu. Það sama gildir þegar við sjáum að hægja tekur á í efnahagslífinu. Þá ber okkur sú skylda að mæta þeirri niðursveiflu fyrir efnahagslífið, fyrir atvinnulífið, fyrir heimilin. Þrátt fyrir það vorum við að auka innviði mjög duglega á mjög mörgum sviðum en þó að gæta að ákveðnu jafnvægi í ríkisfjármálum. Við vorum ekki heldur að fara fram úr okkur í þeim efnum og það er það sem tölurnar segja okkur. Þess vegna hafna ég því alfarið að tala um afleit vinnubrögð. Þvert á móti bera fjárlögin með sér skynsamlega ríkisfjármálastefnu. En ég get gagnrýnt það (Forseti hringir.) að við settum okkur í spennitreyju eins og fjármálaráð gagnrýndi hér um árið.