staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er vissulega alveg rétt, sem hv. þingmaður bendir á, að við erum auðvitað með gríðarlega stóra málaflokka og margir þeirra fela í sér að umfang þeirra mun væntanlega vaxa. Akkúrat þeim mun brýnna held ég að hljóti að vera fyrir okkur að leggjast yfir það til framtíðar hvernig við ætlum að rísa undir þessu. Þar þarf fyrst og fremst að tryggja hagvöxt og að atvinnulífið geti staðið undir þessu. Það hlýtur að vera verkefnið og ég veit að hv. þingmaður er sammála mér um það; hlutverk nýsköpunar, þróunar og þar fram eftir götunum. Það hlýtur líka að vera hluti af þessu að endurskoða og velta fyrir sér hvort hægt væri að reka með hagkvæmari hætti þessi stóru, miklu kerfi sem við erum að reka og hvort ekki sé að verða tímabært að taka til alvarlegrar skoðunar hvaða hluti þessara kerfa væri betur kominn í rekstri annarra en ríkisins sjálfs. Ég er ekki að boða einkavæðingu. Ég er að velta fyrir mér stærra hlutverki einkarekstrar í þessu samhengi.