staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Hæstv. forseti. Það er algjör synd að hafa jafn skamman tíma þegar jafn stórar spurningar eru undir. Við komumst auðvitað aldrei hjá því í okkar litla hagkerfi að nýta allt framlag og allt framtak, hvort sem það er sjálfboðaliðastarfið allt, félagasamtök og öll verðmætin sem eru í því eða einkareknar stofnanir. Við skulum taka dæmi af heilbrigðiskerfinu. Mér finnst sú umræða oft einhvern veginn kristalla það sem við erum að kljást við hér. Það eru allir sammála um að við eigum að veita bestu mögulegu þjónustu eins og lögin mæla fyrir um, lög um heilbrigðisþjónustu, og að hún eigi að vera rekin af hinu opinbera. Það þýðir hins vegar ekki að við nýtum ekki sérfræðiþekkinguna (Forseti hringir.) úti í atvinnulífinu, úti í samfélaginu. Við erum einhvern veginn oft að rugla þarna á milli. Ég held að við verðum bara óhjákvæmilega að gera það. Þannig verður skilvirknin til. (Forseti hringir.) Við eigum engan möguleika annan en að klára okkur af þessu í því umfangi (Forseti hringir.) og þeirri getu sem hagkerfið hefur til verðmætasköpunar.