staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Forseti. Það er áhugavert að fara yfir allt ferlið 2019, frá fjárlögum út árið og nú skil á ársreikningi og endurskoðunarskýrslu. Við erum að fara yfir það í desember 2020, það er rúmlega tveggja ára ferli frá því að fjárlög fyrir 2019 voru lögð fram, árið 2018. Á öllum þessum tíma hefur verið farið mjög frjálslega með fjárheimildir, ef maður getur orðað það þannig. Við getum bara tekið dæmi um hvernig farið er með fjárauka og þær óhjákvæmilegu og ófyrirsjáanlegu fjárheimildir sem leitað hafa þangað, sem við höfum gagnrýnt þó nokkuð mikið. Við getum líka farið yfir í það sem ég hef helst verið að gagnrýna, en það er kaflinn um stefnumótun stjórnvalda, hvernig kostnaðar- og ábatagreiningar og valkostagreiningar vantar, hvernig grundvalla á alla vinnuna á grunngildunum gagnsæi og varfærni og á þeim skilyrðum sem við sjáum í lögum um opinber fjármál. Þegar við fáum endurskoðunarskýrsluna, þegar við fáum ársreikninginn í hendur, spyr maður sig hversu mikilvæg vinna fjárlaganefndar hafi verið við að fara yfir það hvernig farið var með fjárheimildir þegar allt kom til alls. Við höfum áður farið þó nokkuð vel yfir ársreikning, við gerðum það árið 2017, minnir mig. Þá fórum við á þó nokkra fundi þar sem við ígrunduðum útgjöld á hverju málefnasviði fyrir sig o.s.frv. Kannski er Covid-afsökunin núna en mér finnst það ekkert rosalega góð afsökun. Mig langaði að velta upp með hv. þingmanni vinnu nefndarinnar við þetta, bara svona almennt. Það er ákveðin virðing við þær fjárheimildir sem þingið fær, hvernig nefndin meðhöndlar beiðnir um fjárheimildir og hvernig Alþingi fer með fjárveitingavaldið og hvernig það endurspeglast því ferli sem við sjáum um fjárlög og ríkisreikning.