151. löggjafarþing — 31. fundur,  3. des. 2020.

staðfesting ríkisreiknings 2019 .

277. mál
[15:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég fór einmitt yfir eitt af þeim dæmum sem birtust okkur í ríkisreikningi 2019, lokaniðurstöðunni eins og hún liggur fyrir og er vandamál núna við afgreiðslu fjárlaga fyrir 2021, en það eru málefni Landspítala – háskólasjúkrahúss þar sem við enduðum í hallarekstri hjá háskólasjúkrahúsinu upp á 3,8 milljarða eða svo árið 2019 vegna kjarasamninga og fráflæðisvanda, að því er okkur er sagt, og ýmislegs annars, en alla vega eru það stærstu liðirnir. Þetta hefur áhrif á hvernig við glímum við fjárlög fyrir næsta ár. Þetta var einhvern veginn ekki vandamál fyrir árið 2020, kannski af því að allt kemur svo seint, t.d. komu ársskýrslur ráðherra um mitt þetta ár og fjárlaganefnd fjallaði heldur ekkert rosalega mikið um þær, enda eru þær tiltölulega gagnslausar þegar stefnumörkuninni með kostnaðarábatagreiningu er ekki sinnt og öllu því, en á því þurfa ársskýrslurnar að grundvallast, og við getum sagt: Fyrst við stóðum okkur svona vel í stefnumótuninni og gerðum hana rosalega gagnsæja og góða þá getum við í alvörunni sagt í ársskýrslunum að fjárheimildirnar hafi skilað góðum árangri. En þegar það er ekki gert er ekki hægt að segja neitt í ársskýrslunni og ekkert til að fjalla um fyrir fjárlaganefnd, þannig að við erum núna, fyrir afgreiðslu fjárlaga fyrir 2021, að vesenast með halla frá árinu 2019 frá Landspítalanum, sem er mjög merkilegt af því að við erum ekki enn þá búin að fá viðurkenningu á því að þetta séu þau atriði sem valdið hafi hallarekstrinum, þ.e. að fjármálaráðuneytið vanreiknaði kostnað af kjarasamningum fyrir Landspítalann, sem er óbein aðhaldskrafa á spítalann og sem við ættum að sjálfsögðu taka upp hérna sem fjárheimildarmál og segja: Nei, þetta gengur ekki. Við verðum að laga þetta. En við erum í þessari stöðu núna við afgreiðslu á ríkisreikningi fyrir árið 2019, með þennan hausverk við afgreiðslu fjárlaga 2021 og það sér hver maður, held ég, að fjárlög og fjárveitingamálin eru miðað við þetta í algerum ólestri hjá ríkisstjórninni.