staðfesting ríkisreiknings 2019 .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisandsvar og hugleiðingar sem eru svo sannarlega réttmætar og gott að koma inn á það í þessari umræðu vegna þess að þegar fjárlögin eru vanáætluð með þessum hætti sem við höfum séð, þá verður þetta keðjuverkandi áhrifavaldur inn í næstu fjárlög og þarnæstu fjárlög og svo áfram. Við sjáum það í málefnum Landspítala – háskólasjúkrahúss, eins og hv. þingmaður nefndi hér réttilega sem mjög gott dæmi um þetta.
Þá vil ég nefna annað dæmi sem varðar heilbrigðiskerfið og er alveg dæmigert fyrir það þegar menn horfa ekki á hver árangurinn er af fjárveitingunum. Það eru biðlistarnir í hinar ýmsu aðgerðir eins og liðskiptaaðgerðir og þess háttar. Og þrátt fyrir auknar fjárveitingar er ekkert hægt að vinna á biðlistunum. Verið er að senda sjúklinga utan í aðgerðir sem hægt er að gera hér heima fyrir mun minni pening. Þetta eru einmitt hlutir sem er mjög nauðsynlegt fyrir fjárlaganefnd að fara mjög vandlega yfir og gera þá kröfu að brugðist verði við þessu með eðlilegum hætti. Það gengur ekki að heilbrigðisráðuneytið geti ákveðið að velja aðgerðir sem eru mun dýrari erlendis þegar hægt er að gera þær hér. Við verðum að stöðva slíka meðferð á opinberu fé. Það er margt sem laga þarf í þessari vinnu, og ég er búinn að rekja það í ræðu minni hér í tengslum við ríkisreikning að það er alveg ljóst að áætlanagerðin er engan veginn í lagi þegar tekjur eru ofmetnar upp á 60 milljarða kr. Það sjá það allir að það er eitthvað að í þessari vinnu þegar svoleiðis hlutir gerast.